Textílfélagið hlýtur styrk úr Myndlistasjóði

Textílfélag Íslands hlaut 900.000 króna undirbúningsstyrk úr Myndlistasjóði við úthlutun sjóðsins sem fram fór 25. mars 2026. Styrkurinn er veittur til undirbúnings afmælisritsins Textílfélagið í hálfa öld, sem stefnt er að gefa út árið 2029 í tilefni af 55 ára afmæli félagsins.

Alls var úthlutað 45,6 milljónum króna til 83 verkefna að þessu sinni. Sjóðnum bárust 257 umsóknir og var sótt um styrki fyrir samtals 273 milljónir króna. Textílfélagið hlaut hæsta undirbúningsstyrkinn í flokki undirbúningsstyrkja, sem er bæði mikil viðurkenning fyrir verkefnið og mikilvægur stuðningur við komandi vinnu við söfnun heimilda, rannsóknir og ritun sögu félagsins.

Við þökkum Myndlistasjóði innilega fyrir stuðninginn og hlökkum til að deila framvindu verkefnisins með félagsmönnum á næstu misserum.