INDIGÓ LITUN, SHIBORI OG SASHIKÓ ÚTSAUMUR

Indigó litun, shibori og sashiko útsaumur 17.-19 október 2025. Föstudaginn 17. október kl. 18:00-20:00 – Indígólögur útbúin og undirbúningur fyrir litun. Laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. verður kennsla frá 10:00-16:00. Unnið verður jöfnum höndum við litun og sashiko útsaum. INDIGÓ LITUN. Þátttakendur læra aðferðir við munsturgerð fyrir litun m.a.shibori og gera tilraunir á bómullarefni. ÚTSAUMUR. […]
Kumihimo 24. október

Kumihimo er hefðbundinni japönsk aðferð til að flétta snúrur, bæði kringlóttar, ferkantaðar og einnig að flétta flata borða. Fléttað er á svokölluðum fléttudiskum sem geta verið ýmist hringlaga eða ferhyrndir. Með kumihimo fléttutækni er hægt að flétta fjölbreyttar gerðir af snúrum með margskonar munstrum. Nánari upplýsingar á https://tex.is/namskeid/
Sashiko og Boro 31. október

Sashiko og boro er japönsk útsaumstækni með fjölbreytta möguleika. Sashiko er aðferð til að skreyta efni með fjölbreyttum geometrískum munstrum. Aðferðin er einnig tækni til lagfæra, lengja endingu fatnaðar og vefnaðarvöru og hefur verið kallað sýnilegar lagfæringar “visible mending” á slitnum vefnaðarvörum. Þú munt læra þessar handverks aðferðir og hvernig þær hafa þróuðast frá fyrri […]
Náttúrulegir jólakransar 21. nóvember
Á námskeiðinu verður útbúinn náttúrulegur jólakrans. Þátttakendur munu læra grunntækni í að vefja krans. Undirlögin verða gerð úr greinum og verða formin lifandi hringlaga og gerir hver og einn krans út frá sínum sköpunarkrafti. Notast verður við ýmislegt sígrænt, greinar, plöntur og köngla og eru þátttakendur hvattir til að taka með sér hluti, efni, garn […]
50/100/55 Afmælissýning

Á þessu ári fagnar Textílfélagið 50 ára afmæli með veglegri sýningu á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum. Þátttakendur á sýningunni eru 57 sem er um helmingur félaga og sýnd verða yfir 100 verk. Sýningin ber yfirskriftina 50/100/55 og opnar 1. ágúst kl. 17-20 Sýningarstjóri Ægis Zita Opnunartímar: 14-18 þriðjudaga til sunnudaga til 25. ágúst
