Lýsing
Indigó litun, shibori og sashiko útsaumur
17.-19 október 2025.
Föstudaginn 17. október kl. 18:00-20:00 Indígólögur útbúin og undirbúningur fyrir litun.
Laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. verður kennsla frá 10:00-16:00. Unnið verður jöfnum höndum við litun og sashiko útsaum.
Indigólitun. Þátttakendur læra aðferðir við munsturgerð fyrir litun m.a.shibori og gera tilraunir á bómullarefni.
Sashiko Kenndar verða útsaums aðferðirnar boro, sashiko og kogin, það eru einföld spor sem nýta má á fjölbreyttan hátt til skreytinga, viðgerða eða sem frjálsan útsaum.
Innifalin er allur efniviður sem nota þarf á námskeiðinu.
Nemendur þurfa að koma með hlífðarföt (svuntu og hanska) og nesti.
Verð: 46.500
Kennarar:
Þorgerður Hlöðversdóttir er textíl listakona og kennari er sérfræðingur í jurtalitun. Hún hefur starfað við kennslu í textíl og haldið fjölda námskeiða í jurtalitun og tekið þátt í sýningum á Íslandi og í Kanada.
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir vinnur textíl og bókverk með fjölbreyttum efnum og aðferðum. Hún hefur starfað við kennslu í textíl og myndlist samhliða listsköpun sinni og tekið þátt í sýningum á Íslandi, Skandinavíu og Bandaríkjunum.
Skráning á heimasíðu félagsins www.tex.is/namskeid
Hámarksfjöldi nemenda er 12
Kennt verður á föstudag kl. 18:00-20:00 og laugardag og sunnudag kl. 10:00-16:00.
Kennsla fer fram á verkstæði Textílfélagsins, Korpúlfsstöðum Thorsvegi 1, 112. Reykjavík




