Lýsing
Vinnuborð ( 3,10 m x 1,50 m) sem hægt er að leigja á 2500,- daginn. Þetta er minna vinnuborðið á verkstæðinu en litunareldhús og sauma og sníða aðstaða nýtist með öðrum sem mögulega bóka sig á verkstæðið sama dag. Ath. að ef óskað er eftir að hafa verkstæðið útaf fyrir sig má bóka það hér á síðunni. Ef áhugi er á lengri tíma en viku þá er best að hafa samband við stjórnina.
Allt annað er hægt að nota í samvinnu við þá sem eru á sama tíma. Mikilvægt að þrífa vel borðið eftir notkun, ganga frá í eldhúsi og setja í uppþvottavélina, sópa, þrífa gólf , skúra vinnusvæðið og taka rusl og henda í gám fyrir utan eða taka með sér ruslið. ; )



