Textílfélagið hlýtur styrk frá Samfélagssjóði EFLU

Textílfélagið hlýtur styrk frá Samfélagssjóði EFLU Textílfélag Íslands hefur hlotið styrk frá Samfélagssjóði EFLU vegna sýningarinnar Staður, sem verður haldin í sal Íslenskrar grafíkur dagana 30. júlí–16. ágúst 2026. Styrkurinn var afhentur við vorúthlutun sjóðsins þann 11. júní. Samfélagssjóður EFLU hefur frá árinu 2013 stutt verkefni sem stuðla að öflugu samfélagi, auknum lífsgæðum og fjölbreyttu […]

STAÐUR – sýning í sal Íslenskrar Grafíkur

Sýningin STAÐUR verður haldin í Grafíksalnum dagana 30. júlí–16. ágúst. Þema sýningarinnar er STAÐUR. Hugtakið er opið og fjölþætt og býður upp á fjölbreyttar túlkanir. Staður getur verið landfræðileg staðsetning, landslag eða umhverfi, en getur einnig verið minning, tilfinning, líkamsvitund eða óhlutbundið rými. Hann getur verið ytri eða innri staður, raunverulegur eða ímyndaður, stöðugur eða síbreytilegur. […]

Sýning – ÞAÐ HÚMAR AÐ

Laugardaginn 8. nóvember opnaði Textílfélagið sýningu í samstarfi við Handverk og hönnun á Eiðistorgi Seltjarnarnesi. Sýningin verður opin fimmtudaga til sunnudaga til 29. nóvember frá kl. 13:00-17:00. Þriðjudaginn 18. nóvember kl 18:00 verða pallborðsumræður þar sem rætt verður um birtingarmynd handverks í hönnun og listum. Þátttakendur verða Guðrún Erla Geirsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Sigmundur P. Freysteinsson […]

50/100/55 Afmælissýning

Á þessu ári fagnar Textílfélagið 50 ára afmæli með veglegri sýningu á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum. Þátttakendur á sýningunni eru 57 sem er um helmingur félaga og sýnd verða yfir 100 verk. Sýningin ber yfirskriftina  50/100/55 og opnar 1. ágúst kl. 17-20 Sýningarstjóri Ægis Zita Opnunartímar: 14-18 þriðjudaga til sunnudaga til 25. ágúst

2023 sam(t)vinna – samsýning á Hlöðuloftinu

sam(t)vinna – samsýning Textílfélagsins stendur yfir á Korpúlfsstöðum 1.-23.apríl 2023 Þar eru samtöl og samvinna meðlima sett í forgrunn. Ferli var sett af stað þar sem þátttakendum var boðið að mynda pör og vinna að því að finna sameiginlegan flöt í listsköpun sinni. Afraksturinn er margvíslegur; aðferðir, efnistök og sjónarhorn hljóta hér ýmist endurnýjun eða […]