Samfélagsmiðlar: Instagram og Facebook (25.september)
Nemendur kynnast þeim mögleikum sem eru í boði á samfélagsmiðlum og ná tökum á þeim tólum og tækjum sem að í boði eru. Námskeiðið verður bæði hagnýtt og einstaklingsmiðað.Kennari: Helga Björg Kjerúlf
Skráning: http://tex.is/
Textíll: saga og þróun (7.,12. og 14.október)
Textílsögunámskeið þar sem farið yfir þróun textílhandverks og sögu á heimsvísu. Þá verður sjónum beint að íslenskum textíl í gegnum aldirnar, áhrifavöldum og stefnum. Þannig öðlast nemendur breiða yfirsýn yfir sögu og þróun textíls og textíltækni.
Kennari: Íris Ólöf Sigurjónsdóttir
Skráning: http://tex.is/namskeid/textill-saga-og-throun-7-12-og-14-oktober/
Skráning: http://tex.is/namskeid/
Spjaldvefnaður (9.október)
Eins dags námskeið þar sem nemendur kynnast spjaldvefnaði og áhöldum tengdum honum. Farið verður í einfalda mynsturgerð og sett upp í vefnað eftir mynstri.
Kennari: Ólöf Einarsdóttir
Indigolitun og útsaumur (16. og 17.október)
Nemendur læra að útbúa indigolög og lita bæði garn og efnisbúta. Kenndar verða útsaumsaðferðir, einföld spor sem nýta má á fjölbreyttan hátt s.s. boro, sashiko og frjálsan útsaum. Unnin verður hugmyndavinna á pappír sem er yfirfærð á efni.
Kennarar: Arnþrúður Ösp Karlsdóttir og Þorgerður Hlöðversdóttir
Skráning: http://tex.is/namskeid/indigolitun-utsaumur-16-17-oktober/
Skráning: http://tex.is/namskeid/
Endurheimt og efnisvinnsla (5.,6. og 7.nóvember)
Á námskeiðinu verður einblínt á endurnýtingu og endurvinnslu á efnum við gerð bútasaumsverka.
Fyrirlestur um eðlislæga merkingu efna þ.e. hvernig þau voru framleidd og hvaða vistfræðilegu áhrif textílgerð hefur á heiminn. Á námskeiðinu læra nemendur ýmsar aðferðir við gerð bútasaums og eiga að öðlast næga þekkingu á námskeiðinu til að geta lokið við stærra teppi að því loknu.
Fyrirlestur um eðlislæga merkingu efna þ.e. hvernig þau voru framleidd og hvaða vistfræðilegu áhrif textílgerð hefur á heiminn. Á námskeiðinu læra nemendur ýmsar aðferðir við gerð bútasaums og eiga að öðlast næga þekkingu á námskeiðinu til að geta lokið við stærra teppi að því loknu.
Kennari: Christalena Hughmanick
Skráning: http://tex.is/namskeid/endurheimt-og-efnisvinnsla-5-6-7-november/
Skráning: http://tex.is/namskeid/