Textílfélagið bíður uppá örnámskeið í hugmyndavinnu fyrir val á myndefni í handverki og list fimmtudaginn 6. mars milli 18 og 21. Námskeiðið er kennt á verkstæði Textílfélagsins á Korpúlfsstöðum en kennari er Drífa Líftóra

Nemendur námskeiðsins eru leiddir í gegnum skref til að þróa myndverk í hvers kyns handavinnu. Farið verður yfir öflun innblásturs, samtvinningu hugðarefna og hvernig má þróa fjölbreytt úrval skissa út frá téðum innblæstri með tiltekna tækni í huga.

Innifalið er efni til skissugerðar og prentari er á staðnum en nemendur eru hvattir til að mæta með bækur eða ljósmyndir hafi þeir eitthvað sérstakt í huga að vinna út frá.

Frekari upplýsingar og bókun á námskeiðið er hér:

Val á myndefni í handverki – Innblástur og skissuvinna 6. mars – Textílfélagið