Indigó litun, shibori og sashiko útsaumur
17.-19 október 2025.
Föstudaginn 17. október kl. 18:00-20:00 – Indígólögur útbúin og undirbúningur fyrir litun.
Laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. verður kennsla frá 10:00-16:00. Unnið verður jöfnum höndum við litun og sashiko útsaum.
INDIGÓ LITUN. Þátttakendur læra aðferðir við munsturgerð fyrir litun m.a.shibori og gera tilraunir á bómullarefni.
ÚTSAUMUR. Kenndar verða aðferðirnar boro, sashiko og kogin, það eru einföld spor sem nýta má á fjölbreyttan hátt til skreytinga, viðgerða eða sem frjálsan útsaum.
Innifalin er allur efniviður sem nota þarf á námskeiðinu.
Nemendur þurfa að koma með hlífðarföt (svuntu og hanska) og nesti.
