Textílfélagið býður upp á þrjú skemmtileg námskeið í júnímánuði. Námskeiðin henta bæði þeim sem hafa þekkingu á textílgerð sem og byrjendum. Kennararnir eru sérfræðingar á sínu sviði og verða öll námskeiðin haldin á Textílverkstæðinu á Korpúlfsstöðum.
Námskeiðin fjögur eru: munsturgerð, tvö ólík körfugerðarnámskeið og þriggja daga námskeið í jurtalitun og bókagerð.
Hér er að finna frekari upplýsingar um námskeiðin og hlekk á skráningarsíður.
28.júní
Farið verður yfir helstu tegundir mynstra og hvernig skal búa þau til með lagskiptingu í brennipunkti til að ná fram dýpt og góðu flæði. Þá verður lögð sérstök áhersla á silkiþrykksaðferðina og hvernig sé best að ná að skapa mynstur í ramma.
Kennari: Drífa Líftóra Thoroddsen
—-
23.júní
Laukkörfugerð – skráning
Kennt verður flétta körfu með aðferð sem stundum er kennd við Burkina Fasa en var einnig notuð í Norður-Skotlandi til þess að gera beitikörfur.
Við æfum aðferðina og handtökin með mismunandi efniviði og fléttum síðan eina körfu úr sefgrasi. Laukkörfuna má hengja á vegg.
Kennari: Guðrún Pétursdóttir
—
26.júní
Rammakörfugerð – skráning
Körfur fléttaðar með þessari aðferð eru oft kallaðar rammakörfur eða eggjakörfur. Þetta er hefðbundin aðferð við körfugerð, sem nota má á til þess að flétta eða vefa fjölbreyttar körfur og því skemmtilegt að kunna.
Á þessu námskeiði nýtum við eingöngu efniviði úr okkar nærumhverfi. Rætt verður um efnisöflun og kennt að flétta körfu úr greinum og melgresi.
Kennari: Guðrún Pétursdóttir