Á námskeiðinu verður útbúinn náttúrulegur jólakrans. Þátttakendur munu læra grunntækni í að vefja krans. Undirlögin verða gerð úr greinum og verða formin lifandi hringlaga og gerir hver og einn krans út frá sínum sköpunarkrafti.

Notast verður við ýmislegt sígrænt, greinar, plöntur og köngla og eru  þátttakendur hvattir til að taka með sér hluti, efni, garn osfrv og vefja inn í kransinn. Nánari upplýsingar á https://tex.is/namskeid/