Textílfélagið býður upp á örnámskeið í refilsaumi fimmtudaginn 5. júní  kl. 18-21 á verkstæði félagsins á Korpúlfsstöðum. Kennarar eru Arnþrúður Ösp og Þorgerður

Refilsaumur er útsaumsgerð sem notuð var á miðöldum við gerð meistaraverka sem unnin voru af listfengum konum sem bjuggu yfir þekkingu og þjálfun í vefnaði og útsaumi.

Útsaumsgerðin dregur nafn sitt af orðinu refill, en það voru skrautleg tjöld úr ull eða líni sem höfð voru til þess að tjalda að innan bæði kirkjur og híbýli fólks.

Refilsaumur er notaður til að fylla inn í fleti, svipað því að mála málverk. Hann getur virkað eins og teiknimyndir nútímans og með honum eru sagðar sögur.

Tryggið ykkur pláss hér: Viltu læra að mála með nál og þræði? 27. febrúar – Textílfélagið

Hlökkum til að hitta ykkur sem flest