Textílfélagið býður uppá námskeið Sashiko og Boro í húsnæði félagsins á Korpúlfsstöðum fimmtudaginn 3. apríl milli 18 og 21. Kennari er Arnþrúður Ösp myndlistakona.

Sashiko og boro er japönsk útsaumstækni með fjölbreytta möguleika. Sashiko er aðferð til að skreyta efni með fjölbreyttum geometrískum munstrum.  Aðferðin er einnig tækni til lagfæra, lengja endingu fatnaðar og vefnaðarvöru og hefur verið kallað sýnilegar lagfæringar “visible mending” á slitnum vefnaðarvörum.  Þú munt læra þessar handverks aðferðir, hvernig þær hafa þróuðast frá fyrri tímum til nútímans auk þess og fá hagnýt ráð og tól í verkfærakassann þinn.

Vinnustofan fékk frábærar undirtektir í október síðastliðnum og endurtökum við því leikinn. Þessi vinnustofa er opin öllum, sem hafa áhuga á útsaumi, textíllistum eða handverki og vilja auka og innsýn í þessar aðferðir.

Tryggið ykkur pláss hér: Sashiko og Boro Vinnustofa – 3. apríl – Textílfélagið