Jurtalitun og bókagerð
11.-13. ágúst 2025
Mánudaginn 11. ágúst kl. 19:00-21:00 – jurtir tíndar í nágrenni verkstæðisins og lagðar í bleyti.
Þriðjudaginn 12.8. og miðvikudaginn 13.8. verður kennsla frá kl 10:00-16:00. Unnið verður jöfnum höndum við litun og bókagerð
JURTALITUN Þátttakendur læra grunnaðferðir í jurtalitun með íslenskum jurtum sem verða notaðar til að lita ullargarn, nemendur læra einnig að nota hjálparefni sem gefa mismunandi litatóna.Í lok námskeiðsins fá nemendur prufur af öllu því sem þeir hafa litað á námskeiðinu.
BÓKAGERÐ Þátttakendur læra að brjóta og sauma nokkrar mismunandi gerðir bóka. Hugmyndavinna og skissugerð verður unnin með jurtalit og bleki, handgerðum penslum og einföldum áhöldum á pappír, sem síðan verður notaður við gerð bókanna
Innifalin er allur efniviður sem nota þarf á námskeiðinu.
Nemendur þurfa að koma með hlífðarföt (svuntu og hanska) og nesti.
Kennarar:
Þorgerður Hlöðversdóttir er textíl listakona og kennari er sérfræðingur í jurtalitun. Hún hefur starfað við kennslu í textíl og haldið fjölda námskeiða í jurtalitun og tekið þátt í sýningum á Íslandi og í Kanada.
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir vinnur textíl og bókverk með fjölbreyttum efnum og aðferðum. Hún hefur starfað við kennslu í textíl og myndlist samhliða listsköpun sinni og tekið þátt í sýningum á Íslandi, Skandinavíu og Bandaríkjunum.
Skráning á heimasíðu félagsins www.tex.is/namskeid
Hámarksfjöldi nemenda er 12, lágmarksfjöldi er 8.
Kennt verður á föstudag kl. 18:00-20:00 og laugardag og sunnudag kl. 10:00-16:00.
Kennsla fer fram á verkstæði Textílfélagsins, Korpúlfsstöðum Thorsvegi 1, 112. Reykjavík
