Í sumar býður Textílfélagið upp á námskeið í júlí og ágúst. Fyrst verður þriggja daga námskeið, 5.-7. júlí, í jurtalitun og bókagerð. Nemendur læra grunnatriði litunar með notkun íslenskra jurta og hjálparefna sem gefa mismunandi tóna. Jurtalitirnir verða áfram notaðir í öðrum hluta námskeiðsins þar sem kenndar verða ýmsar mismunandi aðferðir við bókagerð. Annað þriggja daga námskeið verður 10.-12 ágúst. Áherslan þar verður á indigolitun og útsaumsaðferðir. Notast verður við aðferðir s.s. boro, sashiko og sibori við litunina og útsauminn.
Kennarar á námskeiðinu verða Þorgerður Hlöðversdóttir og Arnþrúður Ösp Karlsdóttir.
Skráning er á heimasíðu félagsins: www.tex.is/namskeid/