Textílfélagið hlýtur styrk frá Samfélagssjóði EFLU
Textílfélag Íslands hefur hlotið styrk frá Samfélagssjóði EFLU vegna sýningarinnar Staður, sem verður haldin í sal Íslenskrar grafíkur dagana 30. júlí–16. ágúst 2026.
Styrkurinn var afhentur við vorúthlutun sjóðsins þann 11. júní. Samfélagssjóður EFLU hefur frá árinu 2013 stutt verkefni sem stuðla að öflugu samfélagi, auknum lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi. Að þessu sinni bárust sjóðnum 141 umsókn og hlutu 10 verkefni styrk.
Sýningin Staður verður samsýning tíu textíllistamanna sem vinna ný verk sérstaklega fyrir sýninguna. Textílfélagið þakkar Samfélagssjóði EFLU innilega fyrir stuðninginn, sem er mikilvægur þáttur í að gera sýninguna að veruleika.
Mynd með fréttinni er fengin af vef EFLU – https://www.efla.is/frettir-og-blogg/tiu-verkefni-hlutu-styrk-ur-voruthlutun-samfelagssjods-eflu
