TEXTÍLFÉLAGIÐ opnar sýningu í BLÁA HÚSINU, SIGLUFIRÐI fimmtudaginn 3. júlí kl 15 og stendur sýningin út júlímánuð.
Opið daglega frá kl 14:00 – 18:00.
Textílfélagið var stofnað  árið 1974 og fagnar 40 ára afmæli sínu í ár.
Félagið er eitt af aðildarfélögum SÍM, Sambands íslenskra myndlistarmanna og er eitt þeirra félaga sem stendur að Hönnuarmiðstöð Íslands. Í dag eru félagskonur 75 talsins. Tuttugu og ein listakona tekur þátt í þessari sýningu Textílfélagsins á Siglufirði en hún er sú fyrsta í röð sýninga í tilefni afmælisársins. Frá 10. júlí til 10. ágúst sýnir hópur úr Textílfélaginu verk í Halldórskaffi í Brydebúð og í Suður-Vík í Vík í Mýrdal og í október verður sýning í Reykjavík á vegum félagins í húsnæði SÍM, að Hafnarstræti 16. VERIÐ VELKOMIN
 
Fimmtudagur 03.júlí 2014 – Kristinn J. Reimarsson
Fjallabyggð.is