Útúrdúr – textílrými Textílfélagsins

Útúrdúr er textílrými Textílfélagsins á Korpúlfsstöðum þar sem vinnustofa og sýningarrými fara saman. Þar eru haldnar sýningar, viðburðir og námskeið sem gefa gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum heimi textíllistar og textílhönnunar í lifandi verkstæðisumhverfi.

Á dagskrá eru bæði einstaklings- og hópsýningar ásamt reglulegum mini textílsýningum. Sýningarnar endurspegla fjölbreytni íslenskrar textíllistar og skapa vettvang fyrir samtal milli listafólks og gesta.

Fyrsta sýningin í Útúrdúr var samsýning stjórnar og verkstæðisnefndar Textílfélagsins. Í maí vann Sigrún Halla Ásgeirsdóttir á verkstæðinu og sýndi verk sín og í haust verður sýning á verkum Heidi Kristianssen.

Myndir sem fylgja fréttinni eru frá fyrstu sýningunni í apríl 2026

Við hlökkum til að taka á móti gestum í Útúrdúr og bjóða þeim að upplifa textíllist í skapandi og lifandi umhverfi.