Sunnudaginn 14. júní fór Textílfélagið í vorferð sína um Suðurland. Alls tóku 20 félagsmenn þátt í ferðinni sem tókst afar vel. Dagskráin var fjölbreytt og áhugaverð og veðrið lék við hópinn með sól og blíðu allan daginn.

Fyrsti viðkomustaðurinn var í fallegri vinnustofu Maju Siska í Skinnhúfu, þar sem þátttakendur fengu innsýn verkefni hennar. Þaðan var haldið til Selfoss þar sem Elín Guðmundsdóttir tók á móti hópnum í Íslensku Ullarvinnslunni og kynnti starfsemina. Næst var komið við hjá Hespuhúsinu hjá Guðrúnu Bjarnadóttur, sem sagði frá verkefnum sínum og vinnuaðferðum við litun.

Ferðinni lauk á sýningunni Stórsjór – Oceanus Hafsjór á Eyrarbakka. Þar tók Ásta Guðmundsdóttir á móti hópnum og gekk með okkur um Eyrarbakka. Þar sem við skoðuðum sýningarnar fjölmargra listamanna í sýningarrýmum sem dreifð voru um þorpið.

Fréttinni fylgja nokkrar myndir, en því miður gleymdist að taka mynd af öllum hópnum.

Við þökkum öllum þeim sem tóku á móti hópnum og gerðu daginn eftirminnilegan.