Brynja Emilsdóttir, textíl- og fatahönnuður, sýnir í nóvember lampakúpla handunna úr tvinna í versluninni Aurum í Bankastræti. Brynja hefur um árabil unnið föt, mynstur og nytjahluti úr tvinnaflækjum en hefur að undanförnu unnið úr þeim kúlur sem sem hún svo gerir úr lampakúpla. Allt að 2.000 metrar af tvinna fara í hvern lampa en þræðina vinnur hún í marglitar flækjur sem gefa töfrandi litbrigði og mynda hálfgagnsætt efni sem gefur frá sér hlýlegt og fallegt ljós. Kúplarnir eru af ýmsum stærðum og í ýmsum litum og má bæði nota sem lampa á fæti og sem loftljós.
Brynja útskrifaðist frá textíldeild Listaháskólans árið 2000 og lagði síðar stund á nám í fatahönnun fyrir iðnframleiðslu við Guerrero skólann í Barcelona á Spáni. Hún hefur síðan unnið að fata- og textílhönnun auk þess sem hún kennir við Myndlistarskóla Reykjavíkur.
Brynja notaði fyrst tvinna í verk sín fyrir um tíu árum, þá sem þrykkmynstur, en hóf síðar að gera efni úr tvinnaflækjunum sem hún hefur notað m.a. í fatnað, brúðarkjóla, diskamottur og skartgripi auk ljósanna sem hún sýnir nú.
Útstillingar með ljósunum verða í Aurum, Bankastræti 4, allan nóvember en hönnun eftir Brynju má einnig finna í verslununum Kraum, Kokku, Hraunhúsum og í Hrím á Akureyri. Sjá nánar umfjöllun hjá Hönnunarmiðstöð og Pressunni.
![]() |
![]() |